Um Little Bees

Börn í kennslustofu í Little Bees

Í fátækrahverfinu Mathare í Nairobi höfuðborg Kenía er starfræktur lítill skóli að nafni Little Bees. Skólann sækja meira en 100 bláfátæk börn sem eru búsett í hverfinu. Það voru nokkrir góðhjartaðir aðilar í hverfinu sem komu á fót þessu verkefni til samhjálpar undir forystu Lucy Odipo.

Sjálfboðaliðar úr hverfinu sáu um kennslu og umönnun barnanna og nágrannar hjálpuðu til. Auk þess að fá kennslu í skólanum fengu börnin eina máltíð á dag. Frá upphafi hafa íslenskir aðilar stutt við bakið á börnum sem skólann stunda, með mánaðarlegum greiðslum og gjöfum. Þessi samskipti hafa verið afskaplega gefandi fyrir báða aðila.

Stuðningsforeldrarnir fá bréf og myndir af börnunum og upplýsingar um námsframvindu þeirra.

Í skólanum er lögð áhersla á að kenna grunngreinar eins og lestur, ensku og stærðfræði, þá er kristnifræðsla og mikið sungið.

Saga húsnæðisins

Í upphafi samanstóð húsnæði skólans af nokkrum bárujárnskofum og einu fátæklegu steinhúsi. Mjög þröngt var á milli húsanna og leiksvæði barnanna einungis fáeinir fermetrar með einni gamalli rólu og rennibraut. Gólfin í bárujárnskofunum þar sem kennslan fór fram voru moldargólf þar sem flæddi inn þegar rigndi og börnin fengu sýkingu í fætur af sníkjudýrum sem þar leyndust. Nánast engin kennslugögn voru til staðar, í einum kofanum var lítil krítartafla en í aðra vantaði allt, líka borð og stóla. Bækur og blýanta höfðu börnin ekki á þessum tíma.

Fyrri húsakostur
Fyrri húsakostur Little Bees skólans
Nýr húsakostur

Stuðningsforeldrar barnanna á Íslandi hófu því að safna fé í byggingarsjóð með það fyrir augum að byggja upp betri aðstöðu fyrir börnin í skólanum. Byrjað var að reisa hús á tveimur hæðum en síðan hafa bæst við tvö hús, annað sem hýsir leikskólabörnin en hitt eldhús og geymslur. Með dugnaði fólksins í hverfinu og fjárhagslegum stuðningi frá Íslandi er smám saman að verða allt annar bragur á skólastarfinu í Little Bees.

Skólinn í dag

Nemendur í skólagarðinum fyrir framan nýmálaðan skólann, mars 2026
Í skólagarðinum, mars 2026
Skólabyggingin með bláum svölum og appelsínugulum veggjum
Skólabyggingin eftir málningu
Nýju eldavélarnar í eldhúsi skólans
Nýjar eldavélar í eldhúsinu, 2025