
Þú gætir gerst stuðningsforeldri barns í skólanum
Með mánaðarlegum greiðslum kr. 3.500 fyrir grunnskólabarn eða kr. 4.200 fyrir framhaldsskólanema er hægt að styrkja barn í skólanum. Flest þeirra búa við sára fátækt, sum munaðarlaus eða búa með fátæku einstæðu foreldri eða öðrum aðstandanda. Það veitir þeim mikinn stuðning að vita af bandamanni í fjarlægu landi.
Reikningur stuðningsforeldra fyrir mánaðarleg framlög er 0303-26-72140, kt. 580107-2140 en einnig er hægt að greiða með kreditkorti.
Þú gætir styrkt skólann sjálfan
Sumir kjósa að styrkja ekki ákveðið barn heldur leggja skólanum og þar með börnunum lið með mánaðarlegu framlagi. Það framlag fer inn á sama reikning og framlög stuðningsforeldranna.
Þú gætir greitt framhaldsskólagjöld
Þegar börnin ljúka námi í Little Bees taka þau samræmt próf og af þeirri einkunn ræðst hvort þau komast í framhaldsskóla. Fæstir foreldrar barnanna sem við styðjum hafa tök á að borga skólagjöld í framhaldsskóla svo að margir stuðningsforeldrar hafa ákveðið að halda stuðningnum áfram og rennur hann þá allur til greiðslu skólagjalda.
Þú gætir greitt í framhaldsskólasjóð
Við erum nýlega farin að styðja afburða námsmenn sem útskrifast úr Little Bees með mjög góða einkunn á samræmdu prófi en eiga ekki stuðningsforeldra og ekki kost á framhaldsnámi nema við greiðum fyrir þá skólagjöldin.
Þú gætir gefið börnum morgunverð
Við höfum lagt höfuðáherslu á að tryggja skólagöngu barnanna og yfirleitt ekki sent peninga til matarkaupa en eftir að Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna hætti matargjöfum í skólann getum við ekki annað en reynt að gefa börnunum að minnsta kosti morgunmat og gert þeim þannig kleift að einbeita sér og læra. Morgungrautur fyrir eitt barn í mánuð kostar ekki nema kr. 250. Hægt er að ganga í klúbbinn og borga fyrir ákveðinn fjölda barna á mánuði. Börnin eru um 200 talsins í skólanum svo að morgunverðarklúbburinn okkar rúmar marga góða stuðningsaðila!
Þú gætir verið haukur í horni þegar á þarf að halda
Þú gætir líka fylgst með starfi okkar á Facebook og stutt með fjárframlagi þegar eitthvað sérstakt er um að vera, til dæmis þegar safnað er fyrir vissum framkvæmdum eða umbótum í skólanum, barist við sjúkdómsfaraldur eða safnað fyrir læknisaðgerð.
Þú gætir líka vakið athygli á starfi skólans eða bara fylgst með okkur!
Við erum með Facebook-síðu og erum þakklát fyrir að sjá sem flesta þar.
