Stuðningsforeldrar

Börn í Little Bees bolum í skólagarðinum

Stuðningsforeldrar leggja mánaðarlega ákveðna fjárhæð, (kr. 3.500 fyrir grunnskólabarn en kr. 4.200 fyrir framhaldsskólanema) inn á reikning Vina Kenía, sem Vinir Little Bees eru rekin undir, (0303-26-72140, kt. 580107-2140) eða greiða með korti. Sumir borga umfram þessa upphæð, sem fer þá í ýmislegt sameiginlegt, t.d. styðjum við sameiginlega sem hópur nokkur börn sem ekki eiga stuðningsforeldra í framhaldsskóla, því þau stóðu sig vel í lokaprófi í grunnskóla og hefðu þurft að hætta námi annars og stundum vantar eitthvað sérstakt til skólans.

Mánaðarlega eru þessir peningar sendir til Little Bees, á reikning samtakanna sem reka skólann, „Little Bees Self Help Group“. Peningarnir renna til skólans sjálfs, en ekki til barnanna beint eða forsvarsmanna þeirra. Börnin fá kennslu og jafnvel máltíð í skólanum og ef þau vantar eitthvað annað til skólagöngunnar, t.d. skólabúning, skó eða þess háttar, þá sér forstöðukonan, Lucy Odipo, um að kaupa það fyrir þau. Lucy sendir svo reglulega myndir og skýrslur um börnin og þau eldri skrifa stundum bréf til sinna stuðningsaðila.

Þegar börnin eru komin í framhaldsskóla breytist stuðningurinn talsvert. Þá greiðum við skólagjöldin og heimavist fyrir þau sem fara í skóla fjarri heimili sínu. Þá er matur innifalinn, öruggt skjól og kennsla. Skólagjöldin greiðum við beint inn á reikninga framhaldsskólanna með aðstoð fyrrum nemanda Little Bees, Calvine Sarey og Mama Lucy og starfsmenn skólans safna fyrir okkur bréfum frá börnunum, einkunnum og myndum eftir hvert misseri til að tryggja að stuðningurinn skili sér til þeirra. Þessi bréf og einkunnablöð sendum við til stuðningsforeldranna.

Little Bees skólinn er í raun einkaframtak Lucy og fleiri aðila sem búa í þessu fátækrahverfi, til að reyna að koma börnum í nágrenninu til hjálpar. Grunnmenntun á að heita ókeypis í Kenía, en í raun er það þó þannig að börnin þurfa oft að fara langar leiðir í skóla, þurfa því að eiga góða skó, skólabúninga og námsgögn, sem margir foreldrar eða aðrir forráðamenn ráða ekki við og hljóta börnin í fátækrahverfunum því oft nær enga menntun. Við rekum því ekki skólann, heldur hjálpum til eftir getu. Öll vinna í kringum þetta verkefni á Íslandi er í sjálfboðavinnu, þannig að hver einasta króna sem safnast fer til barnanna.

Stuðningurinn sem börnin eða forráðamenn þeirra fá frá okkur er ekki einungis peningalegur, mörg þessara barna eru algerlega munaðarlaus eða eiga aðeins eitt foreldri sem er jafnvel veikt og getur ekki séð barninu farborða. Það veitir börnunum og forráðamönnum þeirra öryggiskennd og vellíðan að vita af einhverjum, einhvers staðar sem er ekki sama, ef allt bregst.